Útvarp á netinu
22.06.2006 19:39:42 / Anna Margrét

BÆ BÆ

 


www.annaola.blog.com

 

 

 

SJÀUMST


BÆ!




» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 22:44:58 / Anna Margrét

MALMÖ HERE I COME

Jo det er jytte brä... I dag gerdist så stóri vidburdur í lífi mínu ad ég skrifadi undir minn fyrsta kaupssamning á íbúd...  og ekki nóg med tad, heldur er íbúdin í Malmö í Svergie.. svo 17 júlí flytjum vid Jon úr litlu kompunni okkar í Hróarskeldu  í 72 fermetra íbúd í Malmö..
Mér finnst tetta enn vera svo absúrd tilhugsun.. en ég kem nú vonadi fljótlega til med ad átta mig á hlutunum.. enda bara rétt tæpir 2 mánudur til ad pakka öllu draslinu saman..
Tad sem ég er sérstaklega sátt vid í íbúdinni er ad tad er FATAHERBERGI.. hehe..  og ég er náttlega búin ad panta tad.. og Jon tók bara vel í ákvördunina..enda getur hann tá hent leppunum af mér tangad ef honum finnst ég vera ad rusla eitthvad of mikid.. híhí..  :)

Annar erum vid ad koma til ÍSLANDS eftir akkúrat VIKU.. gvöd.. hvad mig hlakkar til ad koma..
verdur án efa afar skemmtilegt ad hitta alla stóra og smáa, unga sem aldna og bara alla hina líka.. 

Ef tad er einhver sem hefur áhuga á ad keyra bíltúr til Keflavíkur á næsta föstudagskvöld um kl 21 endilega látid mig vita.. tví tá vil ég gjarnan fá far med til baka í borgina.. :haha:

En ég var í júróvisjón partýi hjá Jóhönnu minni í gærkvöldi.. afar litríkt og skemmtilegt kvöld med mörgum spakmælum um keppendur kvöldsins..
tad voru tó skiptar skodanir um hana Silvíu Nótt.. ad mínu mati.. var showid alveg allt í lagi.. en ég er bara ekki ad fatta húmorin í kringum tennan karakter..!
Hvad er svona fyndid vid tad ad rakka adra nidur og vera med gedveika stæla vid allt og alla..?? Getur einhver útskýrt tetta fyrir mér..?  Tví tad liggur vid ad madur skammist sín fyrir ad vera Íslendigur í útlöndum eins og er..
en allavega..

ég verd ad fara ad sofa langur dagur framundan á morgun.. vinna og svo beint í afmælisveislu.. svo..

Hejdo.. ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 13:18:14 / Anna Margrét

Sól og blída í Daaanmaark...

Hæ hæ allir, já nú er sumarid komid hérna í Danmörku. sit útí gardi og sóla mig med yndislegu trádlaus internet tenginguna mína.. 20 stiga hiti og yndi.. loksins kvalitítæm med sjálfri mér.. langt sídan ég hef haft tíma til tess.. búid ad vera vitlaust ad gera í skólanum og bara heimilishaldi hér á bæ.. eins og ég var búin ad segja ykkur ætlum vid af fara yfir til Malmö á sunnudaginn, og ástædan sæja mín er ad tad er miklu ódýrara ad búa tar ef madur er med vinnu í Danmörku, tar sem danska krónan er sterkari (ef ég er ad skilja tetta med sterkar krónur rétt) Svo Stelpur mínar tid planid ferd yfir sundid næst tegar tid komid.. :)


Ég ræddi vid kennarana mína hérna í vikunni um ad stinga af til ÍSlands í 14 daga og mission impossible er í höfn.. ekkert mál og bla bla bla.. og ég reyndi nú líka allt hvad ég gat, lofadi medal annars ad fara á bókasafnid og læra alla morgna á medan ég væri á Íslandi... hmmm.. sjáum hvad setur... tetta er reyndar alveg risa einstaklings verkefni.. svo tad gerist ekkert ef ég geri tad ekki... !! 
Svo er ég á fullri ferd ad plana lokahátíd í skólanum.. 16 júní verdur risa hátíd med mat og balli.. ekki amarlegt.. er meira ad segja búin ad redda barthjónustu med thjónum og  áfengi og öllu, svo einu minna fyrir mig/ okkur er büin ad fá tvö sköla systikni med mér í lid.. :)

Ég tarf víst ad fara af huga mér ad lærdómi..
vid heyrumst sídar..
-AMO-


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 21:36:59 / Anna Margrét

ALLT AD GERAST...

sælir löndungar nær og fjær..
ákvad rétt af skrifa línu eda tvær.. er búin ad vera ad drukkna í verkefna vinnu í skólanum.. BRJÁLAD ad gera, skiludum í gær, og fengum nýtt í dag.. svo tad er ekkert slegid slöku vid.. !!

EN tad nýjasta ad frétta hjá mér er ad vid erum ad fara ad skoda íbúd í MALMÖ á sunnudaginn, og ætlum ad kaupa hana ef allt gengur upp.. voda spennó, en vid ætlum nú samt sem ádur ad vinna í Danmörku.. tannig ad ég verd sú skemmtilega blanda..
ÍSLENDINGUR SEM TALAR DÔNSKU SEM BÝR Í SVÍTJÓD... hehe.. já gaman ad tví.. :)

ÉG var svo ad enda vid ad KAUPA mida til ÍSLANDS svo ad ég og Jon getum nú verid vidstödd skýrnina  hjá litla frænda.. vid komum sem sagt um kvöldid 26Maí ( sem er bara rëtt brádum) og stefnum svo á ad keyra nordur á laugardagsmorgninum
og svo förum vid aftur út 6 jún og á ROLLING STONES eda rúllandi steina 8 júní.. og svo má ekki gleyma afmælinu mínu tann 11 júní..
já tad er bara allt ad gerast um tessar mundir..

Ofan á alltsaman eru Pabbi og Mamma svo bara flutt úr Einholtinu.. svo nú verdur hálf skrítid ad koma heim.. En tetta verdur gaman og hlakka til ad sjá nýja húsid í síduhverfinu..

Í dag fór ég svo til Køben til ad hitta gamla vin minn hann Gunna Borg, tad var alveg stór skemmtilegt ad hitta hann og vid ræddum um heima og geima, enda langt sídan vid höfum hist..

en ég ælta ekki ad hafa tetta lengra, er reyndar med alveg heilan helling af myndum sem ég ætla ad fara ad setja inn, en tad verdur ekki núna..

Tarf víst ad lesa einn LANGAN kafla í sölu & markadsfrædi fyrir morgundaginn og ætla mér af sofna útfrá honum upp í rúmi.. 

Heyrumst og sjáumst rétt brádum ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 21:21:28 / Anna Margrét

Med hærgri fót í fararbroddi

Òtrúlegt hvad madur getur verid óheppin suma daga..
tildæmis tá var hægri fóturinn minn alveg med segul á tunga hluti í dag.. ekki ad ég ætli neitt ad fara í smá atridi, en eitt stykki vöfflujárn, hengilás og vöruvagn.. ætti alveg ad segja tad..er nú samt ekkert illa slösud.. fæ sennilega bara ágætan marblett seinna í vikunni..8|

Annars var ég bara í skólanum í dag.. og svo í vinnunni, tad er verid ad undirbúa talningu, og ég fékk tad stóra hlutverk ad setja númer á allar hillurnar í búdinni og teikna tær inn á teikningu í leidinni.. fannst tetta nú bara alveg brád skemmtilegt og tíminn var heldur betur fljótur ad lída..
Ólöf systir og family skelltu sér yfir til sjálands hér í gær, svo ég reikna med af hitta tau hér einn af dögunum.. tad verdur spennandi ad sjá hvad litli kútur er ordin stór.. hef svo sem ekkert meira ad segja..


-Amo-


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 20:46:34 / Anna Margrét

Gleðilegt sumar

JÁ nú er barasta kominn tími á að línu hér..

Punktar páskanna..  

  • Fór til læknis og fékk að vita að ég væri med vírus flensu og gæti þess vegna ekki fengið pensilín..
  • Lét klippa á mig Topp, sem ég er alveg voðalega ánægð með bara
  • Fór til Viborgar og heimsótti  litlu fjölskylduna og þám. Litla frænda minn sem er algjör engill
  • Gat ekki haldið á honum af því ég var lasinn:cry:
  • Snítti mér endalaust
  • Hitti Mömmu og Pabba sem er alltaf jafn gaman..
  • Slappaði af..
  • Hóstaði endalaust
  • Át sælgæti í öll mál, sem ofbauð sumum hehe...:haha: 
  • Fór út að labba med Jon og Austin
  • Verslaði mér smávegis föt
  • Slappaði af
  • Borðaði Páskaegg
  • Skoðaði úrslitin í Fitness..!!
  • Lærði
  • Ég og Jon fórum heim

Þetta var alveg voða fín vika.. og ekki auðvelt að þurfa að vakna snemma og fara í skólan á þriðjudeginum, en við erum að vinna voða spennandi verkefni og þennan skelltum við okkur á strikið og fengum tekið myndir til að setja í blaðið sem við erum að gera.. þar sem þetta er svona karlmannablað og ég einastelpan í hópnum var ég ljósmyndarinn og strákarnir fyrirsæturnar í fötunum sem við fengum lánuð í búðunum.. alveg stórskemmtilegur dagur.. :)

Mamma og Pabbi komu svo til Okkar hérna í Hróarskeldu og voru hjá okkur þar til á föstudagsmorgun.. en þá fóru þau heim á leið..
við skelltum okkur á strikið á fimtudeginum og spókuðum okkur um bæjinn, veðrið hefði alveg mátt vera örlítið betra, en þetta var samt bara í besta lagi ´

á föstudeginnum eftir skóla skellti ég mér svo á interpool svona rétt til að heilsa upp á vinina en um kvöldið fór ég svo í innflutningsparty hjá Freyju vinkonu Jon's. það var alveg ágætt bara þó svo að ég hafi kynnst vinarlegra fólki.. Jon bjargaði svo íbúðinni frá því að springa í loft up.. þegar hann uppgötvaði að það var kveikt á gasinu á eldavélinni og einhver stelpa var á leiðinni inn í eldhúsið með sígarettu.. haldið það hefði verið þokkalegt.. íbúðin eiðilagst í innfluttingspartýinu.. En Jon var snar í snúningum og rýmdi eldhúsið og stóð vörð þar til hættan var liðin hjá..
Já slysin geta gerst áður en maður veit af.. !!8|

ég var svo í vinnunni í gær og var bara hress miðað við að hafa verið vakandi til kl 3:30 en eftir að ég kom heim úr vinnunni gerðist svo það fyndna atvik.. að ég setist niður í sófann aðeins til að slappa af eftir erfiðann vinnu dag með kaffibollann í henndinni.. og áður en ég veit af hrekk ég upp við að ég er rennandi blaut á hendinni.. JÁ ÉG SOFNAÐI MEÐ BOLLANN Í HENDINNI og það var kaffi útum allt.. sem betur fer var kaffið ekki nema volgt.. en DJÍSUSS... hálviti ég.. hehehe...8)

jæja ég ætla að halda áfram að læra, er að skrifa um kynlífsþræla sem eru seldir og smyglað inn til Danmerkur frá austur evrópu og afríku.. og við erum ekkert að tala um einhverjar hræður.. nei við erum að tala um  þúsundir ungra stelpna sem eru seldar útum heiminn óhuggulegur heimur sem við lifum í ... !!!

heyrumst síðar..


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 08:24:58 / Anna Margrét

MEÐ STRENGI Í MAGANUM..!!

vá ég er komin med þvílíka magavöðva af að hósta... við erum að tala um mánuð á miðvikudaginn, med hósta, kvef og hálsbólgu,... er EKKI að nenna þessu lengur.. :klikk:
Er að fara til læknis eftir smástund.. og VONA að það verði gert eitthvað við þessu..!!

Annars er mig búið að vara að dreyma hina undarlegustu drauma undanfarið, gamla kunnigja og vini úr frjálsum, æfingastöðvar.. hmm og hátlara að brotna í tætlur.. hmmm UNDARLEGT... !!  Hvad ætli þetta boði.. ??

Annars er ég kominn í páskafrí.. og er að fara til Viborgar annaðhvort í kvöld eða fyrramálið, er ekki alveg búin að ákveða mig.. hlakka svoooo mikið til... Það verður svo gaman að hitta alla  :)

verð að drífa mig til læknis... heyrumst..


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 15:10:15 / Anna Margrét

Í dag er Þriðjudagurinn 04.04.2006

Heyló.. alltaf er Craig David jafn góður, get hlustað endalaust á gamla diskinn hans, Born to do it..og það eru ca 5 ár síðan hann kom út.. stelpur þið munið eflaust eftir æðinu sem ég var með á tímabili þegar við vorum í ma..!!

Annars var ég ad setja inn myndir frá helginni, á föstudaginn var tekið smá pool á interpool áður en ég fór að vinna, var í fríi bæði fim og fös í skólanum en var samt að vinna ALLA helgina, svo á laugardagskvöldið var hittingur heima hjá Lasse og sem oft áður var ég eina stelpan, vinkona mín Natacha sem ætlaði að koma beilaði á mér og Chatrine var lasinn.
það var alveg mega smega stuð eins og alltaf þegar þessir drengir eiga í hlut. og
gott að vera með svona lífverði þegar maður fer í bæinn.. ;)
Ég var nú bara alveg ótrúlega spræk á sunnudaginn þegar ég mætti í vinnuna kl 9:30.. hélt að ég myndi vera svoooo þreytt en neibb.. get þetta enn hehe :)

Annars er ég að verða geðveik á þessum hósta sem ég er með, búin að vera með hann í 3 vikur... djísuss... hvað er það...!!!  og ég HATA veðrið hér eins og er.. :evil:

Mamma og Pabbi eru að koma á föstudaginn, en þau fara beint til Viborgar til litlu fjölskyldunnar þar, svo ég sé þau sennilega ekki fyrr en á þri, en ég skelli mér til Viborgar þá í páskafrí í faðmi fjölskyldunnar.. og ég hlakka svo mikið til.. :D

Já og bæ þe veij... við stelpukindurnar erum komnar með blog síðu saman, www.blog.central.is/copy_paste svo hér deilum við leyndarmálum okkar fyrir almenningi ... :haha:

heyrumst síðar..
verð að fara að læra..


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 22:26:04 / Anna Margrét

Lítill Prins er kominn í heiminn..

já tad gerdist í dag... systir mín eignadist lítinn prins.. svo nú er ég ordin MOSTER ANNA... eda bara módursystir sem hljómar miklu miklu betur.. :) vildi bara rétt deila tessu med ykkur.. heyrumst sídar..

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 21:30:42 / Anna Margrét

Nýjar myndir...

já mér er ad batna.. og vedrid er líka ad batna.. var alveg 16 stiga hiti hérna á tímabili í dag.. sweet... :) Ég hef tad svo á tilfinningunni ad systir mín sé ad eiga í töludum ordum.. ad ég er med túrverki.. svo ef tad er rétt.. tá er ég tokkalega skygn.. hmm.. kemur í ljós.. !! Annars vildi ég bara láta vita ad tad eru komnar myndir undir NÝJAR MYNDIR nedst á sídunni, reyndar gamlar nýjar myndir.. tökk sé indælu ADSL internetinu.. Ég ætla ad skella mér í skólann á morgun.. reyndar eini dagurinn sem ég fer í skólann í tessari viku tví skólinn er lokadur á fim.. og fös.. lovlí.. :) og já mér til mikillar gledi fékk ég ad vita ad ég skulda adeins 1/3 af tví sem ég hafdi reiknad med í skatt.. SVO gódur dagur..

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 11:16:19 / Anna Margrét

leidinda mánudagur..

Hæj ég er lasin heima og að sjálfsögðu hvarf það sem ég var að enda við að skrifa.. en hér kemur ríman sem ég var að semja áðan ef ég man rétt..

hmmm.. neibb man hana ekki svo ég sem nýja...

 Ljóta tölva tú er mér böl
getur mig gráhærða litað
mín þolinmæði á þrotum er nú
þú átt mig ekki skilið

Ég alein hér heima sit
hef ekkert annað að gera
með hósta og ræmu
og ræski mit títt
mig langar eitthvað 
annad að gera..


hana nú... þá vitið tið það...

heyrumst síðar..


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 22:03:57 / Anna Margrét

GAMALT OG GOTT..

Kíkið á þetta... annaola.blogspot.com  gamalt blogg sem ég var búin að gleyma frá 2002... takk fyrir kærlega.. bara örfáar færslur.. hahaha... ferkar fyndið...!!

Annars er ég líka komin með Danskt blogg annamargreta.blogspot.com ef þið viljið lesa um það sem ég er að gera á dönsku... :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 00:31:40 / Anna Margrét

Fuglaflensa og sumartími..

Halló balló.. þá er maður loksins kominn med þráðlaust internet.. ekkert smá næs.. ligg eimitt upp í sófa núna með sængina mína, og hausverk.. er búin að næla mér í einhverja helv.. flesnu.. ekki gaman..

Annars er það er frétta að tad er ekkert að frétta..var að vinna í dag og er komin með svo mikla gubbu af lömpum.. að það hálfa væri nóg!! Til að gera langa sögu stutta sé ég um lampa deildina í Inspiration þar sem ég er að vinna, og eiginkona yfirmanns míns var að loka sinni lampa búð, og mátti verskú taka allt hennar drasl yfir tíl mín af ´því hún hefur kallinn í vasanum.. SVO ég er búin að var á haus í lömpum í dag.. að drepast úr flensu... Hef ekki pælt í því að þetta gæti bara verið ofnæmi kannki.. hmm!!!

Ólöf svess.. er enn að bíða eftir að ungaút.. og allir eru voða spenntir eftir komu erfingjans.. nú hlýtur labba kútur að fara láta sjá sig..

Ég og Jon fórum í bíó í gær með tengdaforeldrum mínum á myndina GASOLIN.. sem er heimildarmynd um hljómsveitina Gasolin á þeirra bestu árum með söngvarann Kim Larsen innanborðs, og þess má geta að Hann var eimitt minn upphalds ´söngvari þegar ég var lítil.. hehe:)
Myndin var rosa skemmtileg.. og eftir hana fórum vid svo og fengum okkur að borða á grískum veitingarstað sem liggur beint á móti bíóinum.. mmmm... slef... ekkert smá góður matur..

Á Morgun skiftum við svo yfir á sumartíma,, svo það tveggja tíma mismunur á Ísl og Dan.. og þá verður loksins bjart þegar ég kem út á kvöldin þegar ég er búin að vinna.. næs.. og þá veit maður líka að það fer að styttast í sumarið..
þó að vorið láti lítið á sér kræla..!!!

Roskilde.. er yfirlíst sem fuglaslensu hættusvæði... þokkalegt það.. !! búið að hengja upp skildti við bæjar mörkinn.. hehe.. og við búum rétt við fjörðinn.. hmmm kannski að þetta sé bara fuglaflensan sem ég er með.. !!!
tek þessu reyndar voða létt, svo lengi sem það eru bara ca 100 manns í öllum heiminum sem hafa dáið úr þessari flensu..þá eru nú líkurnar ekkert of stórar..

jæja nú verður það ekki erfitt að kasta á ykkur línu.. svo þið heyrið frá mér fljótlega.. og myndirnar eru rétt að koma..
svo spennið beltin..
þangað til næst.. seeee ya...


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 07:41:07 / Anna Margrét

same old, same old..

Heilt og sælt veri fólkið,
þá kom að því að ég tók mig saman í andlitinu.. það er orðið þó nokkuð langt síðan ég hef skrifað línu hér..
Annars er allt gott af frétta, mikið að gera í skólanum eins og alltaf.. en alltaf jafn ótrúlega gaman. Það er farið að styttast í páskana og þar med farið að styttast í að ég hitta foreldra mína.. og tala nú ekki um að nýjasti erfingin í fjölskyldunni er alveg á dyrakarminum.. er farin að hlakka mikið til að fara til Viborgar í byrjun Apríl og heilsa upp á fólkið..

Ég uppgötvaði mér til mikills pirrings að ég skulda víst alveg heilan helling í skatt..!!! Nenni eiginlega ekki að tala meira um það af því þá fer ég bara í fílu.. og hanna nú...

Annars liggur allt bara við ljúfa löð.. ekkert nýtt gerst sem vekur til tíðinda..
seinustu helgi bauð Jon ´mér út að borða í kaupmannahöfn sem var alveg rosa kósí.. og svo fórum við líka í mat til foreldra hans.. og það bara þriggja rétta máltíð og allur pakkin.. mmm... ég notaði svo tæki færið af því ég átti fríhelgi í vinnunni til að sofa út.. í 2 daga í röð.. sem hefur ekki gerst í ára raðir .. svo nú er ég endurnærð.. :)

Jú nú man ég að ég og jon erum búin að skrá okkur á biðlista eftir stærri íbúð.. svo við flyjum sennilega innan skamms.. vá hvað mig hlakkar til að komast úr litlu holunni sem við búum í núna..

í Kvöld er Jon að fara á einhverja yfirmanns hátíð í vinnunni, svo vinkona mín húna Natachia ætlar að koma í heimsókn og svo kíkjum við kannski eitthvað á kaffi hús.. og á morgun er ég svo að vinna..

en ætla ekki að hafa þetta lengra, er að stelast í tíma..

heyrumst síðar.. bæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 14:38:48 / Anna Margrét

Spreningar og læti.. !!!

Þá er kominn mánudagur og ég er á leidinni til Viborgar at heimsækja Ólöfu systir og Co.. auðvitað þurfti lestar fólkið að láta mig fá vitlausan miða svo núna sit ég í einhvers sæta og vona að það komi ekki neinn, því minn miði gildir í þann hluta lestarinnar sem fer til Álaborgar.. og ég er ekki alveg að nenna þangað, allavega ekki núna.. Annars var helgin bara alveg hreint aldeilis fín, föstudagurinn fór reyndar bara í ad drekka Te og taka Cvítamín í stórum skömmtum, það var svo bara af hinu góða því á laugardagsmorgni þegar ég vaknaði, var ég bara svona agalega spræk.. skellti ljósum strípum í hárið á mér, sem urðu leindar heldur í meiri kantinum en bara sátt við útkomuna.. síðar lá leiðin upp í bæ, keypti hluta af afmælisgjöfinni hans Jon´s og svo lá leiðin bara heim á leið aftur. um kvöldið var svo matur og skrall med vinnunni, þetta var alveg svaka fjör, þar sem Jonas yfirmaðurinn minn, var búin að útbúa garðveilsu inn á lager med gervigrasi á gólfum og allur pakkin.. þar voru borðaðar pylsur og grillaðir hamborgarar.. og eftir matin hófst svo þessi æsi spennandi fjórþraut.. þar sem greinarnar voru, spurningar keppni um búðina, mini gólf, playstation fight kamp með svona mottu sem maður stendur á og er med skynjara á fótum og höndum, og í lokin póker spil.. Ég var ekki alveg að standa mig í tveim fyrstu greinunum, en þegar kom til slagsmálana fóru stiginn að halast inn, mitt innra eðli braust út og ég slóst ein og ég hefði aldrei gert annað... og viti menn þegar kom að póker spilunu, meikaði ég það svona agalega.. en keppnin varð hörð milli mín susanne og þegar við höfðum spilað tvær í næstum klukkutíma ákvað ég að gefa leikinn til hennar, þar sem stemmingin á fólkinu í kring var farin að minnka, þetta vakti mikla lukku hjá fólkinu og ég hampaði öðru sæti með RISA konfektkassa og ánægt fólk J Við enduðum svo með að skella okkur heim til Susanne 4 stelpur.. og þaðan á einhvern stað í taastrup, ekki að það hafi verið neitt djamm á okkur bara kósí spjall og hygge.. eins og er svo mikið um hérna í Danmörkunni.. Kvöldið endaði svo med að einhver ljótur pólverji var að reyna við mig og biðja mig um að láta hann fá númerið mitt!! Ég var bara hin fúlasta, og gerði hann hálf orðlausan greyjið með þeim svörum sem ég gaf honum.. múhahaha.. já og svo fór ég heim að sofa.. Í gær var bara afstlöppun alveg þar til um 11 leytið í gærkvöldi, kom þessi RISA SPRENGING í uppganginum í blokkinni,, öskraði upp yfiri mig, missti hjartað í buxurnar og næstum meira með.. greip síman í aðra hendina á meðan ég baðaði hinni út um allt, Jón hljóp að dyrunum en það var ekkert að sjá við opnuðum dyrnar og hinir í uppganginum komu líka út, nú var hræðslan í mér örðin af all mikilli reiði, svo ég hljóp út og fór að skimast um eftir fórnalömpum bræði minnar, en því miður fundum við enga.. Þetta hafa sennilega bara verið einhverjur strák pjattar sem fannst þetta svona agalega skondið.. Ég svaf snæstum ekkert í nótt þar sem ég var í svo miklu sjokki... helv... Ef þeir gera þetta aftur þá er mér að mæta.. !! Þetta var helgin í hnotskurn... Við heyrumst síðar...

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5